Lyrics
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn Rennur sól á bak við Arnarfell Hér á reiki er margur óhreinn andinn Úr því fer að skyggja á jökulsvell
Þei þei, þei þei, þaut í holti tófa Þurran vill hún blóði væta góm Eða líka einhver var að hóa Undarlega digrum karlaróm
Ríðum, ríðum, ríðum, ríðum… Þei þei, þei þei, þei þei, þei þei…
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn Rökkrið er að síga á Herðubreið Álfadrottning er að beisla gandinn Ekki er gott að verða á hennar leið
Óðinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Óðinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn Óðinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn
Óðinn leiði drösulinn minn Drjúgur verður síðasti áfanginn

